Jóhannes Ásgeir Eiríksson

fimmtudagur, ágúst 03, 2006

Nýtt blogg

Ákvað að færa bloggið mitt á http://johannesasgeir.blog.is
Þar sem að mér finnst það miklu flottara og þægilegra.

sunnudagur, júlí 02, 2006

Kominn í favorites.

Ég skellti bara blogg síðunni minni í favorits hjá mér fyrst maður er farinn að hafa sig í þetta aftur að blogga. Var langt fram á nótt að klára fermingar albúmið hans villa eða reyndar kláraði ég það í gærkvöldi og byrjaði svo á brynjars. Enda vaknaði ég drullu þreyttur í morgun þegar jóel fór að væla eftir mjólk klukkan 7:30 í morgun. En sem betur fer er ég farinn að geta sofið þói að hann sé grenjandi upp í eyrað á mér nánast. Ekki það að ég sé með einhverja illa meðferð á börnum. Nei það er frekar það að ég er gamal gróinn íhaldsmaður á barna uppeldi. Það er nefnilega konan sem á að sinna börnunum á morgnana og kallinn a sofa út. Það er hlutverk konunar að gefa þeim að borða og klæða. Nema í undartekningar tilfellum þegar karldýrinu langar til þess.

Ekki það að rakel sé eitthvað sammála þessu, langt í frá. Kallaði mig karlrembu eða eitthvað svipað, sem ég man ekki alveg hvað var þvúi ég var sofandi.

Reyndar fékk Guðjón minn það á sig í fyrradag að vera karlremba. Ég sendi hann í sveit sem kúasmala hjá frænda mínum og er hann þar núna í augnablikinu. Hann fékk að fljóta með ömmu þegar hún fór að heimsækja örverpið sitt sem er bóndi.

Ég hringdi á laugardaginn til að vita það hvernig drengurinn hefði það í vistinni. Hann hafði það gott og leið vel í náttúrunni. En honum kæmi samt illa saman við 3 ára frænku sína sem býr þarna á bænum. Þau rifust mikið eins og börnum er tamt en það helsta sem væri að honum væri það að hann væri alltof mikil karlremba. Gott innlegg á 6 ára strák sem kúgar frænku sína. Hvar skildi hann hafa lært þetta?

laugardagur, júlí 01, 2006

Bakarísvesen og Bjöggi

Eitthvað fór þessi bakarísvinna hjá Rakel í Rugl. Allavegana sagði ég henni bara að gefa skít í þetta. Það eru víst tveir eigendur af þessu bakaríi og eitthvað misvísandi upplýsingar um það hvort hún væri ráðinn þar í vinnu eða ekki eftir því við hvern var talað við. En skæitt með það hún náði nú samt að skrifa nokkra kanelsnúða á þessari viku sem hún var í meintri vinnu þarna.

Annars er ég bara búinn að vera að dunda við að gera fermingar albúm. Er búinn að vera að mynda í tveimur fermingum og svo eru 4 brúðkaup sem ég hef verið beðinn um að festa á filmu. Þannig að það er nóg að gera í sumar á þeim vetfangi án þess að maður hafi auglýst nokkuð. Ágætt að fá smá auka pening svo maður geti kannskið fengið visa kortið aftur hjá Bjögga sem fyrst. Mig er nefnilega farið að langa í helling af myndavéladóti.

laugardagur, júní 24, 2006

Til hamingju

Sá mér til mikilla furðu á teljaranum að það er einhver sem enn les þetta blogg. Og í tilefni þess þá ákvað ég að skrifa eitthvað. Um þessar mundir er ég og frúinn ein heima því strákarnir eru hjá systur minni í Hvalfirðinum. Keyrði Hvalfjörðinn tvisvar í gær og þá rifjaðist það upp fyrir mér hvað það var alltaf leiðinlegt að Keyra hann hérna í gamla daga. Reyndar er Rakel í prufu vinnu núna í Bakaríi. Ég heyrði í henni áðan og húbn var á leiðinni heim klifjuð snúðum og kleinuhringjum. Ekki eins og maður hafi gott að því. En þetta eru víst aukaverkanir lífsins að þurfa að halda í við sig í kleinuhringjum og snúðum. Vona bara samt innst inni að hún fái þessa vinnu því mér finnst Vínarbrauð gott.

laugardagur, janúar 21, 2006

Matur

Rosalega er ég feginn að fullorðið fólk er ekki eins og ungabörninn þegar kemur að því að verða svangur. Hann Jóel litli verður alveg trylltur þegar þörfin fyrir næsta pela kemur. Tútnar út og blánar af gremju. Öskrar hærra og hærra og slær frá sér þangað til maður tekur við sér og blandar pela. Menn geta ímyndað sér yfirmola arga og grenja, væla og kíla frá sér þar til einhver rétti honum lambalæri til að naga. Reyndar ef hann Jóel grenjaði ekki svona þá fengi hann víst ekkert að borða. Því ekki kann hann að tala.

Annars er maður orðinn meira en lítið þreyttur á matvæla verðinu og úrvalinu hérna í búðunum. Til dæmis verslanir eins og 11-11. Skrap út áðan og ætlaði að kaupa í matinn. Ég gat valið á milli Súrs lundarbagga eða kjötlæris. Kannski smá ýkt en það var og er ekki úrvalinu að heilsa. Ég endaði á að kaupa SS pulsur.

Við kassan var einhver gaur að rífast við kassadömuna út af verðlaginu á 6 litlum tómötum sem hann var að kaupa 478 krónur. Næstum 100 kr stykkið. Þetta er náttúrulega glæpur þetta okur. Ég sé ennþá í hyllingum stórmarkaðinn sem ég fór í út á spáni. það var sko bónus í lagi. Þar sem heilu skrokkarnir af nauta, kinda og svínakjöti héngu upp í rjáfrum og alls enginn lygi. Úrvalið var svo gott af öllum vörum að ég gat ímyndað mér að ég væri kominn í himnaríki hins þjáða og soltna þriðjaheims þegns.

Allt álegg í sjoppuni, þið vitið þetta sem maður notar vanalega ofan á brauð var eins og meðal þykk íslensk kóteletta á veitingarhúsi á reykjarvíkursvæðinu. Hérna er þetta allt svo þunnt að maður ímyndar sér oft að þeir hjá kjötmiðstöðinni og áleggsgerðinni, eða hvað þetta allt heitir hafi leytað til NASA til að smíða áleggshnífana sína því svo þunnt er íslenska áleggið skorið að maður þarf að taka 2-3 sneiðar á hverja brauðsneið til að finna bragðið.

Og Guð hjálpi þér ef þú lætur umbúðirnar standa opnar í stofuhita því þetta er svo yfirflullt af gerviefnum og matarlími að þetta hverfur og lekur allt niður í frumeindir við slíkar aðstæður.

Já hinir ríku verða ríkari og hinir halda bara áfram að vera blankir.

Svo heyrir maður öðru hverju sögur af því frá útlöndum þegar þú tekur verðgildi 10.000 þúsund krónu íslenskar myntar(svipað og kostar að fara að versla inn hérna fyrir helgina)og fyllir hálfa glitnisrútu af matvörum fyrir sömu upphæð.

Já svona er þetta svínarí og maður getur lítið gert nema borað í nefið.

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Frambjóðandinn.

Núna eru og búinn að vera alskonar prófkjör í gangi og eitt stendur til á næstunni. Allir kannast við ímyndina af frambjóðendum hlaupandi um allan bæ heilsandi upp á gamalmenni og kissandi börn.

Ég lenti í einum í dag, Þekki hann ágætlega hann er reyndar í sama ættlegg og ég. En ekki það nánir að einhver samgangur sé á milli okkar. En hann kemur samt stundum upp í vinnu á nokkra mánaðar fresti í öðrum erindargjörðum en að hitta mig sérstaklega.

Þess vegna varð ég svo sem ekkert hissa þegar ég skrap niður í kaffi í dag og sá hann þar á rabbi við vinnufélaga minn einn. En það sem ég var hissa á að um leið og hann sá mig þá rauk hann upp og sagðist eimitt hafa verið að tala um mig. Nú sagði ég bara og fékk mér kaffi. Reyndar þurfti hann þá að fara í síman svo við töluðum ekki meira saman í bili. En ég þorði samt ekki neitt að fara fyrr en hann var búinn í símanum. Svo þegar hann gerði smá hlé á samtalinu í símanum spurði ég hann hvort að það væri eitthvað sérstakt sem hann vildi tala við mig og bjóst við einhverju verkefni. Nei sagði hann þá -ég vildi bara heilsa upp á þig. Og svo hélt hann bara áfram að tala í síman. Og þá akkurat mundi ég að hann væri í framboði og væri kominn til að kyssa mig, svo ég hljóp í burtu.

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Draumurinn

Dreymdi draum í fyrri nótt sem ég veit ekki hvernig á að túlka. Vona allavega að hann endurspegli ekki mitt innra eðli.

Mig dreymdi að gamall power félagi minn úr Borgarnesi væri kominn yfir móðuna miklu. Ég var þarna staddur heima hjá honum í erfidrykkju og einhver slatti af fólki var þarna ég var staddur inni í herberginu hans við fataskápi. Hurðinn á herberginu var opinn og ég sá fólk frammi þar á meðal foreldra hans sem ég var ekki einu sinni búinn að heylsa upp á og votta samúð mína. Það eina sem ég hugsaði var að ég, þar sem ég stóð upp á stól og var búinn að opna efri hillurnar á skápnum að einginn sæi til mín. Því að það eina sem að ég var að hugsa um var hvernig ég gæti náð "próteininu" hans innan sviga og stolið því ásamt stálbrækunum hans án þess að það sæist til mín.

Lengri var nú draumurinn ekki, en hvernig innræti lýsir þetta. Kannski var ég bara í svona miklum bætingar anda og yfir fullur af eiginn egoi að ég gat ekki hugsað neitt annað. Hvur veit ekki veit ég það.